Snóker- og Poolstofan Lágmúla 5

Riley mótaröðin

9ball mánudagsmótin okkar hafa fengið andlitslyftingu og munu næstu 12 vikurnar bera heitið Riley
mótaröðin. Riley mótaröðin eru stigamót með forgjöf þar sem 10 bestu af 12 mótum telja. Fyrirkomulag er
eins og hefðbundin mánudagsmót, það er keppt verður með forgjöf best of 9 (fyrstur til að vinna 5).

Riley mótaröðin hefst 5. mars kl. 20:00 og verður næstu 12 mánudaga.

Þátttökugjald er 1000 kr. og fyrirkomulagið er eins og mánudagsmótin hafa verið, það er tvö töp til að
detta út fram að 8 manna (fyrr ef það eru fáir með) þar sem beinn útsláttur hefst. Keppt er með forgjöf
svo allir eiga séns!

Gefin eru stig fyrir 6 efstu sætin, en auk þess eru gefin stig fyrir hvern sigur.

10 bestu mótin hjá hverjum og einum telja til stigagjafar, en 3 stigahæstu einstaklingarnir eftir alla
mótaröðina fá glæsileg verðlaun í boði biljard.is og Riley. Auk þess verða veitt ýmis aukaverðlaun í
boði Snóker og Poolstofunnar og Vífilfells.

Verðlaun verða veitt eftir hvert mót, amk. fyrir fyrsta sæti og hefur Snóker og Poolstofan ákveðið að
ábyrgjast 10.000 kr. inneign fyrir fyrsta sætið í hverju móti!

Stigagjöf er eins og hér segir:

1. sæti = 8
2. sæti = 6
3. sæti = 4
4. sæti = 3
5. sæti = 2
6. sæti = 1

Stigatafla og aðrar upplýsingar verða uppfærðar hér á pool.is á þriðjudögum eftir hvert mót.

Riley mótaröðin er í boði biljard.is