Snóker- og Poolstofan Lágmúla 5

Auglýsingaskilti Bjórtilboð Pizzutilboð Samlokutilboð Hamborgaratilboð Auglýsing 2

Markmið okkar á Snóker og Poolstofunni er ekki einungis að bjóða upp á glæsilegustu snóker- og poolsali landsins, heldur leitumst við einnig eftir því að bjóða upp á góðan mat og framúrskarandi þjónustu.

Hjá okkur er viðskiptavinurinn sannarlega númer eitt og við leitumst eftir að gera upplifun þína á staðnum sem ánægjulegasta. Til að mynda höfum við sett upp síma á völdum stöðum sem er beintengdur í afgreiðslu svo hægt er að panta mat og drykki án þess að gera sér ferð á barinn.

Eldhúsið okkar er þekkt fyrir frábæra hamborgara, góðar samlokur og dýrindis pizzur.

Klúbburinn er kóngurinn, þess vegna fá Klúbbfélagar alltaf allt ódýrara! Má þar nefna tilboð á matseðli, bjórinn nánast gefins og ódýrara tímagjald. Það geta allir orðið Klúbbfélagar, þú einfaldlega fyllir út umsókn og borgar félagsgjaldið og þá er þetta komið. Nánari upplýsingar um Klúbbinn má finna hér.

Við tökum einnig á móti hópum, stórum sem smáum, í mat, drykk og stórkostlega skemmtun. Nú er hægt að fylla út form hér á heimasíðu okkar til að fá verðtilboð í hóp. Svo er náttúrulega alltaf hægt að hringja.

Við tökum alltaf vel á móti þér og þínum, enda eru kjörorð okkar á Snóker og Poolstofunni mér líður bara hvergi betur!

 

Snóker- og Poolstofan
Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Sími: 581-1147
pool@pool.is

Opnunartími:
Mán-fim: 11:00-01:00
Fös: 11:00-03:00
Lau: 12:00-03:00
Sun: 12:00-01:00

Snóker- og Poolstofan á Facebook »